Tel: +44(0) 1366 381851
Email : info@highlineextreme.co.uk

Modney Hall | Hilgay, Norfolk | PE38 0HN | United Kingdom
Tel +44 (0) 1366 377232
Mob +44 (0) 7802 706826
info@highlineextreme.co.uk

Home

Hreyfanlegir klifurveggir

· Við bjóðum upp á mesta úrval hreyfanlegra klifurveggja í heiminum.
Þú getur stundað topp-reipi, leiðsluklifur, abseil og grjótglímu með ‘highline’ vörulínunni af hreyfanlegum klifurveggjum.

· Hægt er að setja veggina þannig upp að þeir henti öllum stigum, frá þeim yngstu eða óvönu til mestu klifurgarpanna. Við getum útbúið úrval af staðalbúnaði okkar sérstaklega fyrir þig.

· Hægt að draga með sendibíl
· Vegur innan við 2000 kg
· Sett upp á grasi eða hörðu undirlagi
· Einn maður getur sett búnaðinn upp á 15 mínútum
· Hægt að koma fyrir á venjulegu bílastæði
 

Hreyfanlegt hjólabrettasvæði


· Þetta nýstárlega hjólabrettasvæði sem við höfum einkaleyfi fyrir þýðir að nú getur hvaða hópur sem er notið þess að stunda hjólabretti, hversu lítill sem hann er eða hversu langt frá hjólabrettasvæði hann býr.
Hreyfanleg hjólabrettasvæði hafa marga kosti fyrir notendur og eigendur.

· Hjólabrettasvæðið okkar er algjörlega ný leið til að veita öllum tækifæri til að stunda hjólabretti. Hvort sem um ræðir byrjendur eða vana menn hefur þessi hagkvæmi pakki allt sem til þarf.

· Maxpack er nú einnig í boði – þetta lengir aðalstökkbrettin til að fá fram tvö ennþá stærri stökkbretti. Samt tekur það jafn lítið pláss í geymslu.

· Pakkningin með hjólabrettasvæðinu innheldur allt sem fram kemur á myndinni hér að neðan og hún vegur minna en tvö tonn. Þetta þýðir að auðvelt er að draga hana með sendibíl.

· Uppsetningin tekur tvær manneskjur 45 mínútur á hvaða undirlagi sem hentar, t.d. tennisvelli, bílastæði, jafnvel á slegnu grasi fyrir BMX.

· Það nýjasta á árinu 2006 er hreyfanleg hálfpípa/pínustökkbretti (1,5m að hæð, 4m að breidd, 8,5m að lengd, inniheldur 2 undirstöður) sem passar í sendibíl